Sjálfhýsta Nextcloud-kerfið er opið og frjálst, og heldur þér við stjórnvölinn.

Eiginleikar:
* Auðvelt, nútímalegt viðmót, sem hentar þema netþjónsins þíns
* Sendu skrár inn á Nextcloud-þjóninn þinn
* Deildu þeim með öðrum
* Haltu eftirlætisskránum þínum og möppum samstilltum
* Leitaðu í öllum möppum á netþjóninum þínum
* Sjálfvirk innsending á myndum og myndskeiðum sem þú tekur á snjalltækinu þínu
* Haltu öllu uppfærðu í gegnum tilkynningar
* Styður marga aðganga fyrir hvern notanda
* Tryggðu aðgang að gögnunum þínum með fingrafari eða PIN-númeri
* Samþætting við DAVx5 (áður þekkt sem DAVdroid) fyrir auðvelda uppssetningu á samstilltu dagatali og tengiliðum

Tilkynntu öll vandamál á https://github.com/nextcloud/android/issues og ræddu um þennan hugbúnað á https://help.nextcloud.com/c/clients/android

Er Nextcloud nýtt fyrir þér? Nextcloud er þinn eiginn netþjónn til að samstilla skrár og deila í samstarfs og samskiptaumhverfi. Þetta er frjáls hugbúnaður sem þú getur hýst sjálf/ur eða borgað þjónustuaðila fyrir að gera fyrir þig. Með þessu ert það þú sem ert við stjórnvölinn með gögnin sem þú vilt hafa aðgengileg í gegnum netið, hvort sem það eru ljósmyndir, dagatal, tengiliðir, skjölin þín, og margt fleira.

Skoðaðu Nextcloud á https://nextcloud.com